Fréttir Greiningar

Spáum 0,1% hækkun neysluverðs í júlí

10.07.2015 09:47

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,1% í júlí frá júnímánuði. Ef spáin gengur eftir eykst verðbólga úr 1,5% í 1,8%. Verðbólga verður því áfram nokkuð undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.

Verðbólguhorfur til meðallangs tíma hafa versnað lítið eitt frá síðustu spá að okkar mati. Við teljum að verðbólgan muni verða undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans út 3. ársfjórðung, en fara yfir markmiðið á síðasta ársfjórðungi. Horfur eru á vaxandi verðbólgu í kjölfarið, en hún verður þó samkvæmt spánni rétt innan 4,0% efri þolmarka verðbólgumarkmiðsins næstu ár. Hagstofan birtir VNV fyrir júlí kl. 09:00 þann 23. júlí næstkomandi.

Húsnæðisliður og flugfargjöld til hækkunar

Tveir þættir vega þyngst til hækkunar VNV að þessu sinni, og eru það einnig þeir þættir þar sem spá okkar hefur breyst hvað mest frá bráðabirgðaspá. Það eru annars vegar húsnæðisliður VNV, og hins vegar flugfargjöld. Við spáum því að húsnæðisliðurinn hækki um 1,3% milli mánaða (0,36% áhrif í VNV). Þar vegur þungt 1,7% hækkun á reiknaðri húsaleigu (0,25% í VNV). Vísbendingar eru um að þeir kaupsamningar um íbúðarhúsnæði sem gerðir voru í aprílmánuði og þinglýst var á síðustu vikum hafi hljóðað upp á talsvert hærra fermetraverð en eldri samningar. Einnig gerum við ráð fyrir ríflega 2,0% hækkun á veitukostnaði (0,07% í VNV) og 0,5% hækkun á greiddri húsaleigu (0,03% í VNV).

Verðkönnun okkar bendir til ríflega fimmtungs hækkunar á flugfargjöldum til útlanda milli mánaða. Á móti gætu innlend flugfargjöld lækkað nokkuð eftir mikla hækkun undanfarið. Við spáum því rúmlega 17% hækkun á flugfargjöldum í heild (0,27% í VNV). Af öðrum liðum sem hafa áhrif til hækkunar í júlí í spá okkar má nefna símaþjónustu (0,03% í VNV), og mat og drykk (0,03% í VNV).

Útsölur og eldsneyti til lækkunar

Að vanda vega sumarútsölur til lækkunar VNV í júlí samkvæmt spá okkar. Við gerum ráð fyrir 0,55% lækkunaráhrifum vegna þeirra að þessu sinni. Mest eru áhrifin vegna 11,5% lækkunar á fötum og skóm (-0,52% í VNV), en einnig vega útsölur á húsgögnum og heimilisbúnaði til 0,03% lækkunar VNV í spá okkar. Þá hefur eldsneyti lækkað í verði hérlendis um u.þ.b. 1,1% (-0,04% í VNV) í kjölfar verðlækkunar á heimsmarkaði.

Dagurinn styttist, verðbólgan vex

Við teljum að verðbólga muni aukast eftir því sem líður á haustið og skammdegið tekur við. Að hluta til er ástæðan sú að tímabil verðstöðnunar á seinni hluta síðasta árs dettur út úr 12 mánaða mælingu VNV. Sú verðstöðnun kom til að stærstum hluta vegna hagstæðrar þróunar eldsneytisverðs, áhrifa af breytingum á sköttum og gjöldum á neysluvarningi og hóflegs kostnaðarþrýstings innanlands eftir hófsama kjarasamninga í upphafi síðasta árs.

Hins vegar er verðbólguþrýstingur einnig að aukast í hagkerfinu vegna hraðrar hækkunar launa, viðvarandi hækkunar raunverðs íbúðarhúsnæðis og vaxandi framleiðsluspennu svo nokkuð sé nefnt. Mun það lita verðbólgumælingar komandi missera að mati okkar, og leiða til þess að verðbólgan verður talsvert yfir 2,5% markmiði Seðlabankans næstu árin. 

Við gerum ráð fyrir 0,5% hækkun VNV í ágúst, 0,2% hækkun í september og einnig 0,2% hækkun í október. Hækkun VNV á 3. ársfjórðungi verður samkvæmt því 0,8%, og 12 mánaða takturinn verður kominn í 2,5% verðbólgumarkmiðið í október.

Í kjölfarið spáum við því að verðbólga fari yfir verðbólgumarkmið Seðlabankans og mælist 3,3% í árslok. Enn mun bæta í verðbólguna á næsta ári, og gerum við ráð fyrir 3,7% verðbólgu í lok ársins 2016. Verðbólga verður samkvæmt spánni rétt undir efri mörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans stærstan hluta næsta árs, og ljóst að ekki þarf mikið til að hún fari yfir efri þolmörkin. 

Forsendur okkar varðandi launaþróun, íbúðaverð og gengi krónu til meðallangs tíma eru óbreyttar frá síðustu spá. Vaxandi verðbólga samkvæmt spánni skýrist að stórum hluta af mun hraðari hækkun launa en samrýmist stöðugu verðlagi, enda bendir flest til þess að sú verði raunin næstu misserin. Þá teljum við að íbúðaverð hækki áfram að raunvirði, og setji þar með þrýsting upp á við á verðbólguna. Loks festum við gengi krónu í núverandi gildi, enda hefur gengi krónunnar verið óbreytt í nærri hálft annað ár undir styrkri stjórn Seðlabankans. Í ljósi þess að nú fer í hönd tímabil þar sem fjármagnshöft verða losuð jafnt og þétt má þó búast við auknum sveiflum í gengi krónu á komandi fjórðungum, þótt óvissan um gengisbreytingar sé nokkurn veginn samhverf á spátímanum að mati okkar.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall