Fréttir Greiningar

Stýrivextir óbreyttir í takti við spá

01.06.2016 09:15

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í takti við spá okkar og aðrar opinberar spár. Meginvextir bankans, vextir á 7d bundnum innlánum, verða því áfram 5,75%.

Líkt og við bjuggumst við segir nefndin í yfirlýsingu vegna vaxtaákvörðunarinnar að efnahagshorfur hafi lítið breyst frá síðustu vaxtaákvörðun. Óvenju stutt er frá síðustu vaxtaákvörðun en hún var 11. maí sl. Ákvað nefndin þá einnig að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í takti við spá okkar og aðrar opinberar spár. Kom fram í fundargerð vegna þeirrar ákvörðunar að full samstaða nefndarmanna hafði verði um ákvörðunina og að enginn nefndarmaður taldi ástæðu til að breyta vöxtum þá. Sögðum við í spá okkar vegna vaxtaákvörðunarinnar nú að lítið sem ekkert hefur gerst á þeim stutta tíma sem liðinn er frá síðustu vaxtaákvörðun sem ætti að breyta afstöðu nefndarmanna til stýrivaxta bankans. 

Framsýna leiðsögnin í yfirlýsingu nefndarinnar er einnig óbreytt frá síðustu vaxtaákvörðun. Talar nefndin um í yfirlýsingu sinni að alþjóðleg verðlagsþróun og sterkari króna hafi veitt svigrúm til að hækka vexti hægar en áður var talið nauðsynlegt, en að sama skapi séu vísbendingar um að peningastefnan hafi skapað verðbólguvæntingum traustari kjölfestu en áður  og stuðlað að því að verðbólga hefur aukist minna en vænta mátti í kjölfar mikilla launahækkana. Segir nefndin í yfirlýsingu sinni að það breyti ekki því að miðað við spá Seðlabankans sem birt var í maí er líklegt að auka þurfi aðhald peningastefnunnar frekar á næstu misserum í ljósi vaxandi innlends verðbólguþrýstings. Hve mikið og hve hratt það gerist ræðst af framvindunni. 

Við bendum á að við munum birta nýja þjóðhagsspá okkar á morgun og kynna á fundi í Hörpu í fyrramálið. Þar er m.a. fjallað um spá okkar um þróun verðbólgu og stýrivaxta Seðlabankans. Dagskrá fundar og skráningu má nálgast hér

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall