Fréttir Greiningar

Brún neytenda léttist

24.02.2015 12:01

Væntingavísitala Gallup (VVG) hækkaði um 9,7 stig á milli janúar og febrúar sl., og virðist því brún íslenskra neytenda eitthvað vera léttari nú en undanfarna mánuði. Mælist VVG nú 91,5 stig, og er hér um að ræða fimmta hæsta gildi sem hún hefur náð frá því í apríl 2008 þótt enn séu öllu fleiri svartsýnir en bjartsýnir á ástand og horfur í efnahags- og atvinnumálum. Þetta má sjá í fréttatilkynningu frá Capacent Gallup sem birt var nú fyrir hádegi. 

Allar undirvísitölur hækka í febrúar frá fyrri mánuði. Mest hækkar vísitalan sem mælir væntingar neytenda til aðstæðna eftir 6 mánuði (12,2 stig) og mælist hún nú 111,3 stig. Næstmest hækkar undirvísitalan um mat neytenda á efnahagslífinu (8,9 stig), og mælist sú vísitala nú 74,8 stig. Svipuð hækkun er á mati neytenda á núverandi ástandi (5,9 stig) og á atvinnuástandi (5,8 stig). Mælist fyrrnefnda vísitalan 61,9 stig, sem er næsthæsta gildi hennar frá því í apríl 2008, og sú síðarnefnda 94,2 stig. 

Í hjólförum svartsýni

Þrátt fyrir þessa jákvæðu hreyfingu er VVG enn nokkuð frá 100 stiga jafnvæginu sem markar jafnvægi á milli bjartsýni og svartsýni neytenda á stöðu og horfur í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Hefur vísitalan í raun aðeins aðeins þrívegis náð 100 stigunum á síðastliðnum 7 árum. Það hefur komið okkur nokkuð á óvart að hún hafi í raun ekki mælst hærri síðasta árið eða svo, þar sem það stingur í stúf  við þróun á helstu hagstærðum er varða fjárhagsstöðu heimila. Ber hér kannski hæst að nefna þann vöxt sem verið hefur á kaupmætti launa að undanförnu, en sá vöxtur hefur ekki mælst meiri frá aldamótum. Jafnframt hefur staðan á vinnumarkaði haldið áfram að batna, og virðist staðan þar ekki hafa verið betri frá hruni sem er orðinn dágóður tími. 

Athygli vekur að þegar mælingin á VVG er greind eftir kyni svarenda kemur í ljós að hækkunin nú á sér alfarið rætur í minnkandi svartsýni kvenna, á meðan væntingar karla standa nánast í stað. Undirvísitala fyrir konur hækkar þannig um rúmlega 22 stig í febrúar frá fyrri mánið, og mælist nú 79,3 stig en vísitala fyrir karla er 102,4 stig. Konur hafa nær ávallt verið svartsýnni en karlar í mælingum á VVG, en munurinn var með mesta móti síðustu mánuði.

Bjartsýnir á framtíðina

Sjá má af undirvísitölunum að Íslendingar vænta þess að ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar muni batna frá núverandi ástandi, en við því hafa þeir raunar búist frá því snemma árs 2008. Fyrir hrun var þessu öfugt farið, en frá miðju ári 2004 til mars 2008 var gildi vísitölunnar sem mælir mat neytenda á núverandi ástandi ávallt hærra en þeirrar sem mælir mat á væntingum til 6 mánaða. Töldu neytendur þá núverandi ástand svo gott að það myndi varla batna upp frá þessu, sem er andstætt við stöðuna nú. Við reiknum með að brún íslenskra neytenda léttist enn frekar með hækkandi sól, og jafnvel þannig að VVG komi oftar en ekki til með að mælast yfir 100 stigunum það sem eftir lifir árs. 

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall