Fréttir Greiningar
Hækkun stýrivaxta í takti við spár
19.08.2015 11:24
Mildari tónn
Tíðindin í yfirlýsingu peningastefnunefndar eru að vaxtahækkunartónninn varðandi næstu skref í peningamálum hefur verið mildaður og er nú hin framsýna leiðsögn, sem fyrir ákvörðunina í dag var eindregið til hækkunar, minna afdráttarlaus í þá veru. Þannig sagði í yfirlýsingu nefndarinnar í júní að einsýnt þætti að hækka þyrfti vexti umtalsvert í ágúst og frekar á komandi misserum. Mun mildari yfirlýsing er nú, og talar nefndin um að aukist verðbólga í framhaldi af kjarasamningum eins og spáð er mun peningastefnunefnd þurfa að hækka vexti enn frekar eigi verðbólgumarkmiðið að nást til lengri tíma litið. Virðist nefndin þarna ekki vera sannfærð um að verðbólgan mun aukast jafn hratt og reiknað er með í verðbólguspá bankans sem birt var samhliða ákvörðuninni nú, og er það að milda tón hennar.
Meiri verðbólga, minni hagvöxtur
Líkt og búast mátti við er verðbólguspáin í nýbirtum Peningamálum talsvert svartsýnni en spáin sem birt var í maí síðastliðnum. Bankinn spáir því nú að verðbólga aukist í 4,0% snemma á næsta ári og verði í kjölfarið á bilinu 4,0% - 4,5% næstu tvö árin, en taki síðan að hjaðna á ný. Til samanburðar hljóðaði maíspáin upp á 3,0% verðbólgu 2016 og 3,2% árið 2017. Ástæðan er fyrst og fremst mikil hækkun launa í nýlegum kjarasamningum, en á móti vegur lítilsháttar styrking krónu, hagstæð þróun viðskiptakjara, minni hagvöxtur og meira aðhald peningamála. Bankinn gerir ráð fyrir ríflega 10% hækkun nafnlauna í ár, rúmlega 8% hækkun á næsta ári og ríflega 6% hækkun árið 2017.
Seðlabankinn spáir nú nokkuð minni hagvexti næstu misserin en hann gerði í maí. Gerir hann ráð fyrir að hagvöxtur verði 4,2% í ár (4,6% í maí), 3,0% árið 2016 (3,4%) og 2,8% árið 2017 (3,1%). Minni hagvöxtur í nýju spánni er til kominn vegna minni vaxtar fjárfestingar og útflutnings, og hraðari vaxtar innflutnings, en á móti spáir bankinn hraðri vexti einkaneyslu en áður. Samsetning hagvaxtarins er því óhagstæðari í nýju spánni en áður, og vinnuaflseftirspurn eykst að sama skapi hægar í nýju spánni.