Fréttir Greiningar
Hagvísar: Kortavelta og atvinnuleysi
09.09.2013 11:30
Nokkrir mikilvægir hagvísar verða birtir í þessari viku. Mest eru þetta tölur fyrir ágústmánuð, og má hér nefna tölur Seðlabanka Íslands um greiðslukortaveltu og tölur Vinnumálastofnunar um skráð atvinnuleysi.
Líkur á meiri vexti í einkaneyslu á seinni árshelmingi
Á föstudag mun Seðlabankinn birta tölur um kortaveltu í ágústmánuði, en þær tölur gefa góða mynd af þróun einkaneyslu. Samkvæmt bráðabirgðatölum sem Hagstofa Íslands birti nýverið var afar hægur vöxtur í einkaneyslu á fyrri hluta árs, eða sem nemur rétt um 1,2%. Á sama tímabili jókst kortavelta einstaklinga um 0,2%, sem mátti einkum rekja til 4,1% vaxtar í kortaveltu einstaklinga erlendis enda dróst kortavelta einstaklinga innanlands saman um 0,2% á tímabilinu.
Nokkur vöxtur var í kortaveltu einstaklinga innanlands í júlí sl., eða sem nemur um 2,5% að raunvirði á milli ára. Líkt og að undanförnu var mun meiri vöxtur í kortaveltu Íslendinga erlendis í mánuðinum, eða upp á 5,0% að raunvirði á milli ára. Við teljum góðar líkur á að talsverður vöxtur verði í kortaveltu einstaklinga í ágústmánuði, og í raun teljum við líklegt að þróunin verði öllu jákvæðari á seinni árshelmingi en á þeim fyrri, ekki síst vegna grunnáhrifa, en bakslag varð í kortaveltunni á seinni helmingi síðasta árs.
Aldrei meiri tekjur af erlendum ferðamönnum
Kortaveltutölur Seðlabankans gefa einnig vísbendingu um þróun þjónustujafnaðar, sem er einn lykildrifkraftur vaxtar í íslensku efnahagslífi um þessar mundir. Í júlí sl. nam heildarúttekt erlendra greiðslukorta hérlendis 15,0 mö.kr., sem var aukning upp á 14,5% í krónum talið á milli ára. Á sama tíma nam kortavelta Íslendinga erlendis tæpum 6,5 mö.kr., og var kortaveltujöfnuður, þ.e. mismunur á kortaveltu útlendinga hér á landi og Íslendinga í útlöndum, þar með jákvæður um 8,5 m.kr. í júlí. Er hér að ræða um mesta afgang af kortaveltujöfnuði sem verið hefur í einum mánuði frá upphafi, og hefur hreint gjaldeyrisinnflæði vegna ferðamanna þar með líklega verið í sögulegu hámarki í mánuðinum.
Verður fróðlegt að sjá hvernig kortaveltan kemur út í ágúst. Út fá tölum Ferðamálastofu er ekki við öðru að búast en að sagan muni endurtaka sig í mánuðinum, þ.e. að kortaveltujöfnuður verði mun hagstæðari en hann hefur áður verið í ágústmánuði. Eins og fjallað er um hér að ofan hafa aldrei áður verið fleiri erlendir ferðamenn hér á landi í einum mánuði en í ágúst sl., en þeir voru alls 132 þúsund talsins og fjölgaði um rúm 14% á milli ára. Á sama tíma átti sér stað lítilsháttar samdráttur í utanlandsferðum Íslendinga, eða rétt um 1%.
Skráð atvinnuleysi 3,9% - 4,2% í ágúst
Um hádegisbilið á föstudag mun Vinnumálastofnun birta tölur um skráð atvinnuleysi ásamt öðrum upplýsingum um stöðuna á vinnumarkaði í ágúst sl. Í júlí sl. mældist skráð atvinnuleysi 3,9%, og var þar með óbreytt frá fyrri mánuði. Hefur skráð atvinnuleysi ekki mælst minna í einum mánuði síðan fyrir hrun.
Oftast verður lítil breyting á skráðu atvinnuleysi á milli júlí og ágúst. Á milli þessara mánaða í fyrra jókst það lítillega, eða úr 4,7% í 4,8%. Fyrir um mánuði síðan reiknaði Vinnumálastofnun með því að þróunin á milli þessara mánaða í ár yrði með líkum hætti og hún var í fyrra, og að skráð atvinnuleysi í ágúst yrði á bilinu 3,9%-4,2%.
Dags.
|
Efni
|
Heimild
|
9.sep.13
|
Alþjóðlegur verðsamanburður 2012
|
Hagstofa Íslands
|
9.sep.13
|
Erlend staða Seðlabankans í lok ágúst 2013
|
Seðlabanki Íslands
|
9.sep.13
|
Markaðsupplýsingar fyrir ágúst 2013
|
Lánamál ríkisins
|
10.sep.13
|
Efnahagslegar skammtímatölur í september 2013
|
Hagstofa Íslands
|
10.sep.13
|
Fjármál hins opinbera á 2. ársfjórðungi 2013
|
Hagstofa Íslands
|
10.sep.13
|
Fjármál hins opinbera 2012 - endurskoðun
|
Hagstofa Íslands
|
10.sep.13
|
Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði í ágúst 2013
|
Þjóðskrá Íslands
|
12.sep.13
|
Gjaldeyrisforði og tengdir liðir í lok ágúst 2013
|
Seðlabanki Íslands
|
12.sep.13
|
Útboð ríkisvíxla
|
Lánamál ríkisins
|
13.sep.13
|
Vísitala launakostnaðar á 2. ársfjórðungi 2013
|
Hagstofa Íslands
|
13.sep.13
|
Fjármál ríkissjóðs á greiðslugrunni, stöðutölur í júlí 2013
|
Hagstofa Íslands
|
13.sep.13
|
Peningalegar eignir og skuldir ríkissjóðs, stöðutölur í júlí 2013
|
Hagstofa Íslands
|
13.sep.13
|
Skráð atvinnuleysi í ágúst 2013
|
Vinnumálastofnun
|
13.sep.13
|
Greiðslumiðlun í ágúst 2013
|
Seðlabanki Íslands
|
13.sep.13
|
Smásöluvísitalan í ágúst 2013
|
Rannsóknarsetur Verslunarinnar
|