Fréttir Greiningar

Kortavelta erlendra ferðamanna eykst um fjórðung

16.07.2014 09:59

Alls nam kortavelta útlendinga hér á landi 13,5 mö.kr. í júní sl., sem er aukning upp á rúm 24% í krónum talið á milli ára samkvæmt tölum sem Seðlabanki Íslands birti um greiðslumiðlun á mánudag. Þessi mikla aukning kemur ekki á óvart enda hefur velta aukist á milli ára í hverjum einasta mánuði allt frá því í október 2010, eða samfellt 45 mánuði í röð. Á því tímabili hefur aukningin jafnframt verið að jafnaði 24% á milli ára í mánuði hverjum. 

Á fyrstu sex mánuðum ársins hafa erlendir ferðamenn náð að strauja kortin sín fyrir 47,5 ma.kr. Í krónum talið er þetta 27% hærri fjárhæð en þeir straujuðu kortin sín fyrir á fyrstu sex mánuðum ársins í fyrra (sem þá var met), en 60% hærri fjárhæð og á sama tímabili 2012. Þetta rímar við tölur Ferðamálastofu um brottfarir erlendra ferðamanna frá landinu um Keflavíkurflugvöll (KEF). Samkvæmt þeim voru erlendir ferðamenn um 402 þúsund á fyrstu sex mánuðum ársins, sem er 29% fjölgun frá sama tímabili í fyrra en 64% fjölgun sé borið saman við sama tímabil 2012.  

Kortaveltujöfnuður aldrei hagstæðari í júní

Alls nam kortavelta Íslendinga í útlöndum rúmlega 8,1 mö.kr. í júní sl. Var kortaveltujöfnuður, þ.e. mismunur á kortaveltu útlendinga hér á landi og Íslendinga í útlöndum, þar með jákvæður um 5,4 ma.kr. í mánuðinum. Er hér um langhagfelldustu útkomu þessa jafnaðar frá upphafi í júnímánuði. Má hér til samanburðar nefna að í júní í fyrra var jöfnuðurinn jákvæður um 3,8 ma.kr. og árið þar á undan jákvæður um 2,6 ma.kr. Enn meiru munar sé litið lengra aftur enda er ekki langt síðan að útlendingar náðu að toppa Íslendinga í þessum efnum í fyrsta sinn, en það gerðist í júní 2009. Fyrir þann tíma var kortavelta Íslendinga erlendis ávallt meiri en kortavelta útlendinga hér í mánuði hverjum.

Vísbending um enn meiri afgang á þjónustujöfnuði 

Á 1. ársfjórðungi var afgangur af þjónustujöfnuði vegna ferðalaga upp 1,7 ma.kr., sem er heldur betur viðsnúningur frá því sem áður var, enda hafði þessi hluti þjónustujafnaðar aldrei áður verið jákvæður á 1. fjórðungi. Á hinn bóginn hefur afgangur mælst af þjónustujöfnuði vegna ferðalaga á 2. ársfjórðungi nú á eftirhrunsárunum, og hljóðaði hann upp á 7,5 ma.kr. í fyrra sem er met. Út frá ofangreindum tölum má álykta að við séum að sjá fram á enn hagstæðari þjónustujöfnuð vegna ferðalaga á 2. ársfjórðungi, en eins og við fjölluðum nýlega um má gróflega áætla að hann komi til með að vera um 12 ma.kr. á fjórðungnum. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikilvæg þessi þróun er fyrir gjaldeyrisflæði til og frá landinu, sér í lagi þar sem vöruútflutningur hefur verið heldur rýr þetta árið. Verður því áhugavert að sjá hvernig tölur um þjónustujöfnuð komi til með að líta út á 2. ársfjórðungi, en þær verða birtar í byrjun september. 

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall