Fréttir Greiningar

Neyslugleði í jólamánuðinum

14.01.2014 11:13

nullDágóður vöxtur virðist hafa verið í einkaneyslu á síðasta fjórðungi nýliðins árs, ef marka má kortaveltutölur. Vöxtur kortaveltu hefur ekki verið jafn hraður og á nýliðnum ársfjórðungi síðan á 4. ársfjórðungi 2011 og breytir hann talsvert heildarmyndinni fyrir árið 2013 í heild.

Samkvæmt nýbirtum tölum frá Seðlabankanum nam raunvöxtur kortaveltu í desember síðastliðnum 7,5% á milli ára. Kortavelta innanlands óx um 6,7% í desember að raungildi á milli ára, en kortavelta erlendis óx hins vegar um 16,6%. Á 4. ársfjórðungi í heild óx kortavelta að raungildi um 4,2% frá fyrra ári. Þar af var vöxtur erlendu kortaveltunnar 13,4% en innlend kortavelta óx um 3,2%. Eins og áður segir er þetta hraðasti raunvöxtur kortaveltu síðan á 4. ársfjórðungi  2011, en þá var hann 5,7%.

Mikil velta í jólamánuðinum er vitaskuld árviss, en engin einhlít skýring er á þessum fjörkipp í kortaveltunni í desember miðað við sama mánuð árið 2012. Hugsanlegt er að skuldaaðgerðir ríkisstjórnarinnar, sem kynntar voru í nóvemberlok, hafi hleypt auknu lífi í innkaup landsmanna fyrir þessi jól.

Stígandi í kortaveltunni

nullLífleg kortavelta er nokkuð skýrt merki um góðan vöxt einkaneyslu á fjórðungnum. Þó vegur þar á móti að bílakaup drógust talsvert saman á tímabilinu, en þau voru talsvert lífleg á síðasta ársfjórðungi 2012 og áttu stóran þátt í að skýra að vöxtur einkaneyslunnar þá var talsvert umfram vöxt kortaveltu. Að teknu tilliti til þessa gerum við ráð fyrir að einkaneysla hafi vaxið um 2,5% – 3,0% að raunvirði á 4. ársfjórðungi 2013 frá sama tíma árið áður.

Stígandi var í kortaveltuvextinum á síðasta ári eftir bakslag í einkaneyslunni síðasta vetur. Þannig mældist 0,9% samdráttur að raungildi í kortaveltu á 1. ársfjórðungi 2013, 1,2% vöxtur á 2. fjórðungi, 2,3% vöxtur á 3. fjórðungi og 4,2% vöxtur á 4. ársfjórðungi sem fyrr segir. Á heildina litið óx kortavelta um 1,8% að raunvirði í fyrra, en þess má geta að ef desember er undanskilinn var vöxturinn 1,2%. Neyslukippurinn í kring um jólin hafði því veruleg áhrif á heildarmyndina í fyrra.

Í takti við aðra hagvísa

Kortatölurnar nýju styrkja Seðlabankann væntanlega í þeirri skoðun að hagkerfið sé nú óðum að taka við sér. Spáði bankinn í nóvember síðastliðnum 1,9% vexti einkaneyslu á árinu 2013, og eru kortatölurnar í samræmi við þá spá. M.ö.o. ættu þær ekki að koma á óvart, en þær ríma við jákvæða þróun undanfarið í ýmsum öðrum skammtíma hagvísum á borð við smásöluveltu og vinnumarkaðstölur. Það kemur svo í ljós með kortaveltutölum næstu mánaða hvort innstæða var fyrir aukinni neyslugleði landans í jólamánuðinum, eða hvort heimilin þurfa að herða beltin fastar að nýju á þorranum og góunni.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall