Íslandssjóðir hf. – Ársuppgjör 2010

25.02.2011

Stjórn Íslandssjóða hf. sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2010.

Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2010

  • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  • Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2010 nam 259 m.kr. samanborið við 269 m.kr. árið 2009.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.015 m.kr. samanborið við 1.017 m.kr. árið áður.
  • Rekstrargjöld námu 699 m.kr. samanborið við 700 m.kr. árið áður.
  • Heildareignir félagsins námu 2.986 m.kr. í árslok 2010 en voru 3.074 m.kr. í ársbyrjun.
  • Eigið fé í árslok 2010 nam 1.559 m.kr. en var 1.301 m.kr. í ársbyrjun.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 163,7% í árslok 2010 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
  • Í lok desember 2010 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 115.607 milljónum króna. Einn sjóður sem er skráður í Lúxemborg er í stýringu
  • Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 10.547 m.kr. árið 2010 samanborið við tap uppá 2.124 m.kr. árið 2009.
  • Mikil áhersla hefur verið lögð á viðskipta- og vöruþróun og mun því starfi verða haldið áfram á árinu 2011. Nýjum sjóðum félagsins hefur verið mjög vel tekið, en vel yfir 10 þúsund fjárfestar eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum Íslandssjóða.
  • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2010.
  • Í lok desember 2010 störfuðu 13 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdarstjóri félagsins er Agla Elísabet Hendriksdóttir.
Lykiltölur í m.kr. 2010 2009
Hreinar rekstrartekjur 1.015 1.017
Rekstrargjöld 699 700
Hagnaður fyrir skatta 316 317
Hagnaður eftir skatta 259 269
Eigið fé 31.12 1.559 1.301

Afkoma Verðbréfasjóða fyrir árið 2010

  • Hagnaður verðbréfasjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2010 nam 10.520 m.kr., samanborið við 69 m.kr. hagnað árið 2009.
  • Hrein eign verðbréfasjóða Íslandssjóða í árslok 2010 nam 112.642 m.kr. samanborið við 86.212 m.kr. árið 2009.
  • Mikil aukning varð á hreinni eign verðbréfasjóða Íslandssjóða á árinu 2010 eða um 31% vöxtur sem jafngildir um 26 ma.kr. aukningu. Þessi mikla aukning skýrist bæði af góðri ávöxtun ríkisskuldabréfa ásamt miklu innstreymi fjármagns í ríkisskuldabréfasjóði Íslandssjóða á tímabilinu.
Lykiltölur í m.kr.
Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 Úrvalsvísitala -Sjóður 6 Löng ríkissk.br. - Sjóður 7 Heimssafn - Sjóður 12 Ríkissafn Veltusafn
Hagnaður (tap) ársins 3.060 15 3.758 (8) 2.230 648
Hrein eign í árslok 32.964 209 36.600 738 25.019 10.463
Eignasafn Sjóður 1A Sjóður 1B Sjóður 11A Sjóður 11B Samtals Verðbréfa-sjóðir
Hagnaður (tap) ársins 18 299 385 54 62 10.520
Hrein eign í árslok 197 2.170 3.361 324 597 112.642

Afkoma Fjárfestingarsjóða fyrir árið 2010

  • Hagnaður fjárfestingarsjóða Íslandssjóða færður á hlutdeildarskírteini árið 2010 nam 27 m.kr., samanborið við 2.193 m.kr. tap árið 2009.
  • Hrein eign fjárfestingarsjóða Íslandssjóða árslok 2010 nam 2.965 m.kr. samanborið við 1.809 m.kr. árið 2009.
Lykiltölur í m. kr.
Fókus - Vextir Úrval innl. hlbr. - Sjóður 10 Sjóður 9.1 EUR Sjóður 9.2 NOK Sjóður 9.3 USD Samtals Fjárfestingasjóðir -
Hagnaður (tap) ársins 126 136 (180) (4) (51) 27
Hrein eign í árslok 1.805 621 134 0 404 2.965

Ársreikningur félagsins mun liggja frammi hjá Íslandssjóðum Kirkjusandi, 4. hæð og hjá VÍB - Eignastýringu Íslandsbanka, einnig á vef félagsins: islandssjodir.is frá og með 3. mars næst komandi.

Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, framkvæmda­stjóri félagsins í síma 440-4917.

Til baka