Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 26
02.07.2012

- Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,47% í síðustu viku eftir 2 vikna lækkunarskeið.
- Úrvalsvísitalan hefur gengið í gegnum verðleiðréttingu upp á rúm 7% frá verðtoppi hennar þann 30. apríl s.l. (1095,26 stig) þar til verðbotns þann 27. júní s.l. (1013,22 stig). Vísitalan endaði síðustu viku aðeins 3,5% frá verðtoppnum sem var í lok apríl s.l.
- Hagar hf. hækkaði mest (+2,78%) en félagið birti uppgjör í síðustu viku. Atlantic Petroleum lækkaði mest (-7,55%). Atlantic Petroleum mun detta út úr Úrvalsvísitölunni í þessari viku og í stað félagsins kemur fasteignafélagið Reginn hf. en viðskipti með félagið hófust í Kauphöllinni í morgun.
- Heildarvelta var 5,07 ma. kr. í síðustu viku en 1,1 ma. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Icelandair Group eða 3,7 ma. kr. að markaðsvirði.
- Hagar hf. tilkynnti uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung (tímabilið 1. mars 2012 – 31. maí 2012) s.l. föstudag og var uppgjör félagsins í takt við væntingar. Hagnaður tímabilsins var 628 m. kr. og vörusala var 17,4 ma. kr. sem er 5,2% aukning miðað við sama tímabil í fyrra. EBITDA var 1,13 ma. kr á tímabilinu eða 6,5% af tekjum. Félagið hækkaði í kjölfar uppgjörsins og hækkaði um 2,78% í síðustu viku.
- Hagnaður Haga á tímabilinu var 628 m.kr. eftir skatta og heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins voru 24,6 ma. kr. Eigið fé félagsins var 6,9 ma. kr í lok rekstrarársins og eiginfjárhlutfall 28%.
- Stjórnendur Haga eru að skoða hvort fjölga eigi Bónusverslunum keðjunnar en ekki hafa verið teknar ákvarðanir um stórar fjárfestingar eða fjölgun verslana. Gert er ráð fyrir að rekstur félagsins á árinu verði sambærilegur við niðurstöðu síðasta árs. Það er þó ljóst að enn er nokkur óvissa í efnahagslífinu sem hefur áhrif á hag heimilanna, sem eru stærsti viðskiptavinur Haga. Auk þess hefur samkeppnin á matvörumarkaði ávallt verið mikil og líkur á að svo verði áfram.
- Marel fagnaði á föstudaginn s.l. 20 ára skráningarafmæli, en félagið var skráð á markað 29. júní 1992. Síðan þá hefur starfsmönnum fjölgað mikið og starfa nú um 4000 manns hjá fyrirtækinu, þar af 480 á Íslandi. Markaðsvirði félagsins hefur frá skráningu tæplega sextíufaldast og er í dag stærsta skráða fyrirtæki landsins ef horft er til markaðsverðmætis. Velta fyrirtækisins hefur vaxið meira en 5.600-falt til þessa dags. Það jafngildir 35 prósenta vexti á ári, talið í íslenskum krónum.
Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

Hagar hf. - Daglegt kort

Marel: 20 ár í Kauphöll - Mánaðarlegt kort

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
