Lokagreiðslur úr Sjóðum 9,1 EUR og 9,3 USD

22.06.2012

Miðvikudaginn 20. júní sl. var framkvæmd lokagreiðsla úr Sjóði 9,3 – Peningamarkaðsbréf USD og í dag föstudaginn 22. júní var framkvæmd lokagreiðsla úr Sjóði 9,1 - Peningamarkaðsbréf EUR en sjóðirnir hafa verið í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Um er að ræða aðra útgreiðslu hjá Sjóði 9,3 – Peningamarkaðsbréf USD og fjórðu útgreiðsluna hjá Sjóði 9,1 – Peningamarkaðsbréf EUR frá því sjóðunum var slitið í samræmi við tilmæli FME í október 2008.

Útgreiðsla nú úr Sjóði 9,3 – Peningamarkaðsbréf USD nemur 14,8% miðað við eignastöðu sjóðsins þann 3. október 2008. Útgreiðsla nú úr sjóði 9,1 – Peningamarkaðsbréf EUR nemur 2,5% miðað við eignastöðu þann 3 október 2008.

Útgreiðslurnar hafa verið lagðar inn á bankareikninga sjóðfélaga hjá Íslandsbanka.

Við hvetjum sjóðfélaga til að hafa samband við ráðgjafa okkar hjá VÍB - Eignastýringarþjónustu Íslandsbanka í síma 440 4900 til að fá frekari upplýsingar.

Til baka