Útgreiðsla úr sjóðum 1 og 11
15.06.2012
Í dag föstudaginn 15. júní verður framkvæmd útgreiðsla úr Sjóðum 1A, 1B, 11A og 11B sem eru í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Útgreiðsluhlutföll m.v. eignastöðu sjóðanna í dag 15. júní má sjá í eftirfarandi töflu.
| Sjóður 1A | Sjóður 11A | Sjóður 1B | Sjóður 11B | |
| Útgreiðsluhlutföll | 18,4% | 20,2% | 18,4% | 20,2% |
Um er að ræða sjöttu útgreiðsluna í sjóðum 1A og 11A og áttundu útgreiðsluna í sjóðum 1B og 11B fyrir þá sem völdu þá leið í janúar 2009. Þeir sem völdu leið 1B og 11B í september 2009 eru að fá sjöundu útgreiðsluna nú.
Útgreiðslan verður lögð inn á bankareikninga sjóðfélaga hjá Íslandsbanka.
Vegna útgreiðslunnar bjóðum við sjóðfélögum í Sjóðum 1 og 11 að ávaxta sparifé sitt í sjóðum Íslandssjóða án upphafskostnaðar. Tilboð þetta gildir til og með 22. júní nk. hjá ráðgjöfum Eignastýringar Íslandsbanka í síma 440-4920.
Við hvetjum sjóðfélaga til að hafa samband við ráðgjafa VÍB, eignastýringarþjónustu Íslandsbanka í síma 440 4900 til að fá frekari upplýsingar.
