Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 20

21.05.2012

banner20

 

  • Úrvalsvísitalan lækkaði um 3,66% í síðustu viku og hefur vísitalan þá lækkað um 4% frá hágildi sínu sem var 1095,26 stig þann 30. apríl s.l.
  • Vístalan hefur hækkað um 15,58% frá áramótum.
  • Öll félög Úrvalsvísitölunnar lækkaðu í síðustu viku og lækkaði Atlantic Petroleum mest (-8,06%) en Össur lækkaði um 3,99% og Marel um 3,73%.
  • Heildarvelta var 901 m. kr. í síðustu viku en 1.899 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Marel eða 427 m. kr. að markaðsvirði.
  • BankNordik tilkynnti uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2012 á þriðjudaginn s.l. en tekjur bankans jukust og kostnaður lækkaði lítillega á fjórðungnum. Heildartekjur tímabilsins voru DKK 223 m. á tímabilinu en var DKK 192 m. á fyrri fjórðungi.
  • Hagnaður færeyska bankans af reglulegri starfsemi fyrir skatt og virðisrýrnun útlána á tímabilinu var DKK 70 m. samanborið við DKK 35 m. á fyrri fjórðungi.
  • Áætlanir BankNordik gera ráð fyrir að hagnaður fyrir skatta, virðisbreytingar og einskiptikostnað verði DKK 100 -170 m. fyrir árið 2012.
  • BankNordik lækkaði um 2,6% í síðustu viku og hefur lækkað um 7,4% frá áramótum.

 

 

Fyrirtæki - Verðbreytingar

Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 - Daglegt kort

Icelandair Group - Daglegt kort

Icelandair Group - Daglegt kort

Marel - Daglegt kort

Marel - Daglegt kort

OMXI6 félög

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.

Til baka