Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 7

20.02.2012

banner

 

  • Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,85% í síðustu viku og hækkuðu fimm af sex félögum í vísitölunni sem hefur hækkað um 6,68% frá áramótum.
  • Atlantic Petroleum hækkaði mest (+6,08%) í síðustu viku en BankNordik lækkaði mest (-8,45%).
  • Heildarvelta á markaði var 521 m. kr. í síðustu viku en 912 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Haga eða 239 m. kr. að markaðsvirði.
  • Hagar hf. hækkaði um 2,07% í síðustu viku en fréttir þess efnis að gengislánadómur Hæstaréttar gæti haft þau áhrif að félagið fengi aðra greiðslu vegna endurreiknings á gengistryggðum lánum hefur væntanlega vakið kaupáhuga fjárfesta. Hagar fengu rúmar 500 m.kr. í desember í fyrra vegna endurreiknings á gengistryggðum lánum sem nýtt var til niðurgreiðslu á láni hjá félaginu.
  • Atlantic Petroleum tilkynnir afkomu fjórða ársfjórðungs föstudaginn 24. febrúar n.k. Stjórnendur félagsins gera ráð fyrir rekstrarhagnaði upp á 90-150 m. DKK. fyrir árið 2011.


 

Fyrirtæki - Verðbreytingar

Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 félög

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.

Til baka