Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 5
06.02.2012

- Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,01% í síðustu viku og hefur vísitalan þá hækkað fimm vikur í röð. Hækkun vísitölunnar nemur 6,8% frá áramótum.
- Atlantic Petroleum hækkaði mest (+10,2%) en BankNordik lækkaði mest (-6,58%).
- Heildarvelta var 1.019 m. kr. í síðustu viku en 510 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Marel eða 850 m. kr. að markaðsvirði.
- Marel tilkynnti afkomu fjórða ársfjórðungs 2011 þann 1. febrúar s.l. og námu tekjur félagsins EUR 183,9 m. og var þetta metfjórðungur hjá félaginu. Samanborið við fjórða ársfjórðung 2010 að þá var 9,7% aukning á tekjum félagsins.
- Tekjur ársins 2011 námu EUR 668 m. sem er 15% aukning samanborið við tekjur af kjarnastarfsemi árið áður.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) var EUR 21,6 m. á fjórða ársfjórðungi eða 11,8% af veltu.
- Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) var EUR 73,2 m. sem er 10,9% af tekjum samanborið við EUR 64,1 m. af kjarnastarfsemi 2010.
- Pantanabók Marels lækkaði lítillega á fjórða ársfjórðungi og var EUR 196,2 m. í lok fjórðungsins samanborið við EUR 204 m. í lok þriðja ársfjórðungs. Fyrirliggjandi pantanir námu EUR 175,9 m. sem er lækkun frá þriðja ársfjórðungi. Stjórnendur félagsins telja að markaðsaðstæður séu góðar og að staða pantabókar sé sterk og gefi góð fyrirheit fyrir árið 2012.
- Athyglisvert er að tekjur Marel í Bandaríkjunum og Evrópu dragast saman en vöxtur á öðrum landssvæðum rúmlega tvöfaldast og nema tæplega þriðjungi af tekjum félagsins á síðasta ári.
- Icelandair Group tilkynnti í morgun að félagið hefði gengið frá samningi við stjórnendur SmartLynx um kaup á öllu hlutafé félagsins fyrir síðustu áramót. Síðan fjárhagslegri endurskipulagningu Icelandair lauk þá hefur staðið til að selja dótturfélag þess, SmartLynx í Lettlandi. Salan er bókfærð á árinu 2011 og hefur jákvæð áhrif á afkomu Icelandair Group að fjárhæð 1,1 ma. kr., þar af eru tekjuskattsáhrif jákvæð um 700 milljónir króna. Áhrif á eigið fé eru óveruleg.
- Össur tilkynnir ársuppgjör miðvikudaginn 8. febrúar n.k. og Icelandair Group tilkynnir einnig ársuppgjör sitt í vikunni.
Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
