Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 4
30.01.2012

- Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,66% í síðustu viku og hefur vísitalan þá hækkað fjórar vikur í röð. Hækkun vísitölunnar nemur 5,73% frá áramótum.
- Marel hækkaði mest (+2,57%) en Össur hf. lækkaði mest (-1,55%).
- Heildarvelta var 510 m. kr. í síðustu viku en 844 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Haga hf. eða 309 m. kr. að markaðsvirði. Þá var velta með Marel 146 m. kr. að markaðsvirði.
- Hagar hf. tilkynnti s.l. föstudag um afkomu félagsins fyrir 3. ársfjórðung. Reikningurinn sem var birtur nær yfir tímabilið 1. mars – 30. nóvember 2011 en rekstrarári Haga lýkur í lok febrúar. Hagnaður tímabilsins nam 1.867 m. kr. eða 3,7% af veltu en rekstrartekjur námu 49.898 m. kr. og er það 5,9% aukning milli ára að teknu tilliti til brotthvarfs á rekstri verslunarkeðjunnar 10-11.
- Hagnaður Haga fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 3.083 milljónum króna, samanborið við 3.373 milljónir króna árið áður, en 10-11 var hluti af rekstri félagsins til loka ágúst 2010. Framlegð félagsins hefur dregist saman á milli ára, m.a. vegna hækkandi kostnaðarverðs.
- Stjórnendur Haga meta horfur í rekstri félagsins góðar og rekstur félagsins skv. áætlunum. Almenn óvissa með efnahagsástand á Íslandi og þróun á ráðstöfunartekjum íslenskra heimila getur þó haft áhrif á rekstur félagsins. Félagið hefur samþykkt kauptilboð í rekstur Oasis verslana félagsins í Smáralind og Kringlunni. Kauptilboðið var samþykkt með fyrirvörum en brotthvarf Oasis verslananna hefur óveruleg áhrif á rekstur samstæðunnar.
- Uppgjör Haga var að mestu leyti í takti við spár greiningaraðila en gengi félagsins lækkaði um 1,75% á föstudaginn var þegar uppgjörið var tilkynnt.
- Nýherji hf. tilkynnti ársuppgjör félagsins á föstudaginn s.l. Heildartekjur námu 15.480 m. kr. sem er 7,9% aukning frá árinu 2010. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 532 m. kr. en var 518 m. kr. árið 2010. Heildartap nam 72 m. kr. en 124 m. kr. er vegna virðisrýrnunar á viðskiptavild dótturfélags.
- Marel tilkynnir ársuppgjör sitt miðvikudaginn 1. febrúar n.k.
Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
