Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 3

23.01.2012

banner3

 

  • Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,57% í síðustu viku og hefur vísitalan þá hækkað þrjár vikur í röð. Vísitalan hefur hækkað um 5,04% frá áramótum.
  • Marel hækkaði mest (+2,64%) í síðustu viku en BankNordik lækkaði mest (-5,06%).
  • Marel hefur hækkað mest frá áramótum eða um 8,37%. BankNordik hefur hinsvegar lækkað mest eða um 7,41%.
  • Heildarvelta á markaði var 844 m. kr. í síðustu viku en 1.142 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Marel eða 605 m. kr. að markaðsvirði. Þá var velta með Haga hf. 196 m. kr. að markaðsvirði.
  • Hagar hf. munu birta afkomu félagsins fyrir þriðja ársfjórðung föstudaginn 27. janúar. Uppgjörið er fyrir tímabilið september til og með nóvember en rekstrarár Haga nær frá 1. mars til 28. febrúar.
  • Nýherji hf. mun einnig birta ársuppgjör sitt þann 27. janúar.


 

Fyrirtæki - Verðbreytingar

Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 félög

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.

Til baka