Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 1

09.01.2012

banner1

 

  • Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,88% fyrstu viku ársins 2012.
  • Atlantic Petroleum hækkaði mest (+7,52%) en Icelandair Group lækkaði mest (-3,98%).
  • Heildarvelta á markaði var 691 m. kr. í síðustu viku en 332 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Icelandair Group eða 230 m. kr. að markaðsvirði.
  • Icelandair Group flutti 1740 þúsund farþega árið 2011 og fjölgaði farþegum um 18% frá árinu 2010. Sætanýting var tæp 80%. Icelandair hefur ekki áður flutt jafnmarga farþega eða haft hærri sætanýtingu. Þá flutti félagið rúmlega 100 þúsund farþega í desember s.l. og var það 10% aukning m.v. desember 2010. Sætanýting í desember var 74% og stóð í stað á milli ára. Á árinu 2012 verður sætaframboð aukið um 14% og tveimur vélum bætt við flota félagsins.
  • Atlantic Petroleum tilkynnti í síðustu viku að framleiðsla félagsins í desember s.l. hefði verið mikil og numið 85.000 tunnum eða 2.740 tunnur á dag. Meðalframleiðsla á dag árið 2011 var 2.020 tunnur. Gengi bréfa félagsins hækkaði í kjölfarið í tilkynningunni.

 

 

 

Fyrirtæki - Verðbreytingar

Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 - Daglegt kort

Úrvalsvísitalan - Vigt félaga (%)

Úrvalsvísitalan - Vigt félaga (%)

OMXI6 félög

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.

Til baka