Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 52 og árið 2011

02.01.2012

ban52

  • Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,55% í síðustu viku.
  • Össur lækkaði mest (-0,54%) en ekkert félag hækkaði af félögum í Úrvalsvísitölunni í síðustu viku.
  • Heildarvelta á markaði var 332 m. kr. í síðustu viku en 727 m. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Icelandair Group eða 104 m. kr. að markaðsvirði.
  • Icelandair Group hefur gengið frá kaupum á tveimur Boeing 757 200 vélum sem félagið hefur haft á langtímaleigu. Vélarnar voru keyptar af leigusala vegna hagstæðra kjara sem félaginu bauðst. Meginhluti kaupverðsins var fjármagnaður með rúmlega 24 milljóna dollara láni til 6 ára. Vélarnar hafa verið í notkun í millilandaflugi Icelandair og munu halda því áfram.

Árið 2011...

  • Úrvalsvísitalan lækkaði um 2,58% á árinu en Heildarvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 2,03%.
  • Af félögum í Úrvalsvísitölunni hækkuðu tvö félög á árinu. Icelandair Group hækkaði um 59,68% og Marel um 25,5%.
  • 4 félög í vísitölunni lækkuðu á árinu en þau voru BankNordic (-42,96%), Atlantic Petroleum (-29,66%), Össur hf. (-8,87%) og Atlantic Airways (-8,62%).
  • Heildarvelta félaga í Úrvalsvísitölunni var 59 ma. kr. að markaðsvirði á árinu en velta var 24 ma. kr árið 2010. Mesta veltan var með Marel eða 25,4 ma. kr. á árinu. Velta með bréf Össurar hf. var 17 ma. kr og 14,2 ma. kr. velta var með bréf Icelandair Group.
  • Af öðrum félögum skráðum á Aðallista Kauphallar Íslands hækkaði Hagar hf. um 21,1% frá útboðsgengi félagsins en Nýherji hf. lækkaði um 22%.
  • Af félögum sem skráð eru á First North markað Kauphallarinnar hækkaði HB Grandi hf. um 32,6% en Century Aluminum Company lækkaði um 30,8% og Hampiðjan hf. lækkaði um 29,2%. Sláturfélag Suðurlands var óbreytt á árinu.

Fyrirtæki - Verðbreytingar

Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

OMXI6 - Daglegt kort

Úrvalsvísitalan - Vigt félaga (%)

Úrvalsvísitalan - Vigt félaga (%)

OMXI6 félög

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.

Til baka