Vikuleg samantekt: Innlend hlutabréf - Vika 51
27.12.2011

- Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,11% í síðustu viku og hefur vísitalan þá lækkað um 2,04% á árinu.
- Icelandair lækkaði mest (-3,26%) en ekkert félag hækkaði af félögum í Úrvalsvísitölunni í síðustu viku.
- Heildarvelta á markaði var 727 m. kr. í síðustu viku en 1,05 ma. kr. vikuna á undan. Mesta veltan var með Haga hf. eða 523 m. kr. að markaðsvirði en félagið er væntanlegt inn í Úrvalsvísitöluna 2. janúar 2012.
- Hagar hf. hafa hækkað um 21,11% frá útboðsgengi þess sem var 13,5 en dagslokaverð var 16,35 á föstudaginn. Velta með félagið hefur verið nokkur frá því að félagið fór á markað en alls nemur velta með bréf félagsins rúmlega 1 ma. kr. að markaðsvirði á aðeins 6 viðskiptadögum í Kauphöll Íslands.
- Stjórnendur Icelandair Group eru byrjaðir að kaupa losunarheimildir, en frá og með 1. janúar 2012 mun flugstarfsemi innan EES-svæðisins falla undir viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir. Icelandair er vaxandi flugfélag og þarf félagið því að kaupa sér viðbótar losunarheimildir. Kostnaður vegna þessa getur numið nokkur hundruð milljónum. Hægt er að kaupa losunarheimildir á markaði líkt og eldsneyti en verðið hækkar og lækkar eins og hver önnur vara. Fyrirtæki eru þegar farin að bjóða flugrekendum tryggingar af ýmsu tagi og hægt er að gera samninga um kaup á losunarheimildum til lengri og skemmri tíma.
Fyrirtæki - Verðbreytingar

OMXI6 - Daglegt kort

Úrvalsvísitalan - Vigt félaga (%)

OMXI6 félög

Fyrirvari: Upplýsingar í Vikulegri Samantekt Íslandssjóða eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á þær sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum hlutabréfum. Þær upplýsingar sem hér koma fram eru fengnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum sem taldar eru áreiðanlegar en Íslandssjóðir ábyrgjast þó ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra.
