Íslandsbanki

Íslandsbanki býður alhliða bankaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki á Íslandi með hagsmuni viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Íslandsbanki leggur áherslu á að vera banki í fararbroddi sem veitir viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu, býr yfir öflugri liðsheild og sinna samfélagslega ábyrgum og hagkvæmum rekstri.

Íslandsbanki var upphaflega stofnaður árið 1904 með það að markmiði að styðja við íslenskan sjávarútveg. Það má því segja að nafnið eigi sér langa og merkilega sögu í íslensku fjármálalífi og með stofnun Íslandsbanka í upphafi síðustu aldar hófst nýr kafli í fjármálasögu Íslands. Rétt eins og þá, stendur íslenskt fjármálalíf á krossgötum um þessar mundir og mun Íslandsbanki gegna lykilhlutverki í endurbyggingu trausts og heilbrigðs fjármálakerfis á Íslandi.

Íslandssjóðir hf. er dótturfélag Íslandsbanka og hefur bankinn verið aðalsamstarfs- og söluaðili sjóðanna frá stofnun félagsins (þá Rekstrarfélag VÍB hf.) árið 1994. Hægt er að eiga viðskipti með flesta sjóði Íslandssjóða í Netbanka Íslandsbanka.

Vefur Íslandsbanka

Netbanki Íslandsbanka