Auður Capital
Auður Capital
Auður Capital var stofnað árið 2007 og er í meirihlutaeigu stofnenda, starfsmanna og valinkunnra athafnakvenna. Auður hefur starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki og starfar undir eftirliti FME.
Auður veitir óháða og áhættumeðvitaða ráðgjöf á sviði fjárfestinga. Félagið hefur hagnað að leiðarljósi, en er ekki sama hvernig sá hagnaður verður til og hafnar því viðhorfi að velja þurfi á milli fjárhagslegs arðs og samfélagslegs arðs. Langtímaárangur og gagnkvæmur ávinningur eru hornsteinar í hugmyndafræði Auðar Capital.
Félagið hefur verið samstarfs- og söluaðili Íslandssjóða hf. frá árinu 2008.
