Ríkissafn
Hentugur fjárfestingartími 1 ár+
Ríkisskuldabréf og innlán fjármálastofnana
Ríkissafn - ríkisskuldabréf og innlán er verðbréfasjóður sem fjárfestir eingöngu í skuldabréfum og víxlum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum fjármálastofnana.
Stutt bréf sjóðsins og innlán hafa í för með sér minni sveiflur og stöðugri ávöxtun. Hentar fjárfestingum til 1 árs eða lengur.
Helstu kostir
- Stuttur meðallíftími - minni sveiflur á gengi
- Ódýr leið á skuldabréfamarkað
- Góð kjör á innlánum í krafti stærðar
- Virk stýring á milli innlána og skuldabréfa
- Ávallt laus til innlausnar með eins dags fyrirvara
Fjárfesta í sjóði Upplýsingablað
Markmið sjóðsins
Takmarka sveiflur á gengi með stuttum líftíma eigna og bjóða upp á ódýra leið inn á skuldabréfamarkað.
Fyrir hvern er sjóðurinn?
Sjóðurinn hentar öllum fjárfestum sem vilja ávaxta fé í eitt ár eða lengur. Meðaltími skuldabréfaeignar sjóðsins getur verið á bilinu 1 til 3 ár, þannig að gengi sjóðsins er nokkuð næmt fyrir breytingum á ávöxtunarkröfu og gengi sjóðsins getur lækkað tímabundið. Leitast er við að halda skuldaraáhættu í lágmarki þar sem eingöngu er fjárfest í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og innlánum hjá fjármálastofnunum.
Fjárfestingarmarkmið
Markmið sjóðsins er að fjárfesta 70% í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og 30% í innlánum fjármálastofnana. Heimilt er að auka vægi ríkisskuldabréfa upp í 100% og einnig er heimilt að auka vægi innlána í 50% og draga á móti úr vægi ríkisskuldabréfa.
Almennur fyrirvari
Fjárfestingu í sjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfa- eða fjárfestingarsjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingar sjóða, sérstaklega umfjöllun um áhættur. Athygli skal vakin á að áhætta af fjárfestingu eykst samfara fjármögnun fjárfestingarinnar með lánsfé.
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og lengur er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.
Fjárfesting í afleiðum
Sjóðum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á verðbréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á að kynna sér nánari útskýringar á beitingu afleiðna sem er að finna í útboðslýsingu viðkomandi sjóða.
Skattlagning
Um skattlagningu hagnaðar af hlutdeildarskírteinum gilda lög um tekjuskatt nr. 90/2003, lög um fjármagnstekjuskatt nr. 94/1996 ásamt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987. Frekari skattlagning getur þó komið til. Vakin skal athygli á því að skattameðferðin ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Um erlenda aðila gilda reglur þess ríkis sem viðkomandi hefur skattalegt heimilisfesti í. Fjárfestum er ráðlagt að leita sér ráðgjafar og/eða upplýsinga um skattaleg áhrif þess að fjárfesta í sjóðum.
Almennar upplýsingar
| Ítarefni | |
|---|---|
| Upplýsingablað | |
| Ávöxtunarblað sjóða | |
| Útboðslýsing sjóðsins | |
| Útdráttur úr útboðslýsingu | |
| Ársreikn. Íslandssjóða hf. | |
| Vaxta- og verðskrá verðbréfaþjónustu | |
| Almennt | |
| Stofnár | 2008 |
| Grunnmynt | ISK |
| Lágm.kaup/áskr. | 10.000 kr./5.000 kr. |
| Rekstraraðili | Íslandssjóðir hf. |
| Vörsluaðili | Íslandsbanki hf. |
| Sjóðsstjórar | Aldís Stefánsd. & Ingunn Sigurrós Bragad. |
| Þóknanir | |
| Kostn. við kaup | 0,50% |
| Upphafsgj. í áskrift | 0,38%> |
| Árl. umsj.laun | 0,70% |
| Afgreiðslugjald | skv. verðskrá söluaðila |
| Viðskiptapantanir | |
| Kaup/innlausn | 1 viðsk.dagur (T+1) |
| Viðmiðunartími | kl. 15:00 |


