Erlendir peningamarkaðssjóðir

Vegna aðstæðna sem hafa skapast á fjármálamörkuðum í upphafi októbermánaðar 2008, sem leiddi m.a. til setningar laga nr. 125/2008, hafa Íslandssjóðir hf. ákveðið í samræmi við tilmæli Fjármálaeftirlitsins að grípa til aðgerða sem leiða til slita á erlendum peningamarkaðssjóðum sem starfsræktir voru. Um er að ræða eftirfarandi sjóði:

  • 9.1 EUR
  • 9.2 NOK
  • 9.3 USD

Eignum sjóðanna hefur verið skipt í tvo flokka, A og B flokk. Í A flokk hafa verið færð öll innlán og reiðufé sjóðanna, en í B flokk allir aðrir fjármálagerningar þar sem fyrirtæki (þ.m.t. fjármálafyrirtæki) eru útgefendur.

Engar innlausnir verða úr flokkum sjóðanna. Íslandssjóðir munu að eigin frumkvæði greiða inn á innlánsreikninga allra hlutdeildarskírteinishafa í A flokkum sjóðanna í samræmi við hlutfallslega eign þeirra. Þá verður greitt inn á innlánsreikninga hlutdeildarskírteinishafa í samræmi við hlutfallslega eign þeirra eftir því sem eignir í B flokki fást greiddar uns engar eignir eru eftir í eignasafni sjóðsins. Umræddar greiðslur voru og munu verða greiddar á innlánsreikninga hlutdeildarskírteinishafa hjá Íslandsbanka hf. Markmiðið með þessari aðgerð er að tryggja jafnræði allra hlutdeildarskírteinishafa á þann hátt að allir hlutdeildarskírteinishafar fái greitt hlutfallslega úr sjóðnum í samræmi við eign sína.

Reglubreyting þessi er gerð á grundvelli 2. mgr. 11. gr. laga nr. 128/2011.

Útgreiðslur úr peningamarkaðssjóðum

Alls hefur verið greitt 2.760 m.kr. út úr erlendum peningamarkaðssjóðum.

Útgreiðslur 2008-2010Sjóður 9.1 EUR*Sjóður 9.2 NOK*Sjóður 9.3 USD*
Útgreiðsla 04.12.2008 0
310 0
Útgreiðsla 03.02.2009 875 0 615
Útgreiðsla 11.03.2009 605 0
0
Útgreiðsla 17.09.2010 0 94 0
Útgreiðsla 05.10.2010 261 0 0
*Upphæðir í m.kr.

Nánari upplýsingar

Fjárfestingatakmarkanir

Sjóðunum er heimilt að fjárfesta í samræmi við 3. mgr. og 4. mgr. 59. gr. og F lið II. kafla laga nr. 128/2011. Sjóðunum er jafnframt heimilt að nýta sér 6. mgr. 59. gr. Sjóðunum er hins vegar óheimilt að skortselja fjármálagerninga.

Almennur fyrirvari
Fjárfestingu í sjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfa- eða fjárfestingarsjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingar sjóða, sérstaklega umfjöllun um áhættur. Athygli skal vakin á að áhætta af fjárfestingu eykst samfara fjármögnun fjárfestingarinnar með lánsfé.

Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.

Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og lengur er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.

Fjárfesting í afleiðum
Sjóðum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á verðbréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á að kynna sér nánari útskýringar á beitingu afleiðna sem er að finna í útboðslýsingu viðkomandi sjóða.

Skattlagning
Um skattlagningu hagnaðar af hlutdeildarskírteinum gilda lög um tekjuskatt nr. 90/2003, lög um fjármagnstekjuskatt nr. 94/1996 ásamt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987. Frekari skattlagning getur þó komið til. Vakin skal athygli á því að skattameðferðin ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Um erlenda aðila gilda reglur þess ríkis sem viðkomandi hefur skattalegt heimilisfesti í. Fjárfestum er ráðlagt að leita sér ráðgjafar og/eða upplýsinga um skattaleg áhrif þess að fjárfesta í sjóðum.