Úrvalsvísitala - Sjóður 6
Hentugur fjárfestingartími 5 ár+
Vísitölusjóður
Vísitölusjóður sem fjárfestir í skráðum hlutabréfum í Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands.
Fjárfesta í sjóði Upplýsingablað
Markmið sjóðsins
Að ná sömu ávöxtun og Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands með vægisþaki (OMXI6 Cap ISK) að teknu tilliti til kostnaðar.
Fyrir hvern er sjóðurinn?
Úrvalsvísitala - Sjóður 6 hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í fimm ár eða lengur. Mælt er með því að sjóðurinn sé hluti af stærra verðbréfasafni þar sem sveiflur í gengi sjóðsins geta verið miklar og niðursveiflur á hlutabréfamörkuðum langar.
Fjárfestingarmarkmið
Úrvalsvísitala - Sjóður 6 er vísitölusjóður og fjárfestir í hlutabréfum sem skráð eru í Kauphöll Íslands (Nasdaq OMX Nordic Exchange) og skal vægi hvers félags endurspegla vægi þess í Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands með vægisþaki (OMXI6 Cap ISK).
Tímabundið má sjóðurinn eiga laust fé vegna breytinga á samsetningu vísitölunnar eða vegna markaðsaðstæðna. Sjóðnum er heimilt að fjárfesta í afleiðum, en að hámarki 10% af heildareignum.
Almennur fyrirvari
Fjárfestingu í sjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfa- eða fjárfestingarsjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingar sjóða, sérstaklega umfjöllun um áhættur. Athygli skal vakin á að áhætta af fjárfestingu eykst samfara fjármögnun fjárfestingarinnar með lánsfé.
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og lengur er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.
Fjárfesting í afleiðum
Sjóðum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á verðbréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á að kynna sér nánari útskýringar á beitingu afleiðna sem er að finna í útboðslýsingu viðkomandi sjóða.
Skattlagning
Um skattlagningu hagnaðar af hlutdeildarskírteinum gilda lög um tekjuskatt nr. 90/2003, lög um fjármagnstekjuskatt nr. 94/1996 ásamt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987. Frekari skattlagning getur þó komið til. Vakin skal athygli á því að skattameðferðin ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Um erlenda aðila gilda reglur þess ríkis sem viðkomandi hefur skattalegt heimilisfesti í. Fjárfestum er ráðlagt að leita sér ráðgjafar og/eða upplýsinga um skattaleg áhrif þess að fjárfesta í sjóðum.
Almennar upplýsingar
| Ítarefni | |
|---|---|
| Upplýsingablað | |
| Ávöxtunarblað sjóða | |
| Útboðslýsing sjóðsins | |
| Útdráttur úr útboðslýsingu | |
| Ársreikn. Íslandssjóða hf. | |
| Vaxta- og verðskrá verðbréfaþjónustu | |
| Almennt | |
| Stofnár | 1991 |
| Grunnmynt | ISK |
| Lágm.kaup/áskr. | 10.000 kr./5.000 kr. |
| Rekstraraðili | Íslandssjóðir hf. |
| Vörsluaðili | Íslandsbanki hf. |
| Sjóðsstjórar | Ármann Einarsson & Mogens G. Mogensen |
| Þóknanir | |
| Kostn. við kaup/áskr. | 2,0%/1,5% |
| Árl. umsj.laun | 0,80% |
| Afgreiðslugjald | skv. verðskrá söluaðila |
| Viðskiptapantanir | |
| Kaup/innlausn | 3 viðsk.dagar (T+3) |
| Viðmiðunartími | kl. 15:00 |


