Eignasafn - Ríki og sjóðir
Hentugur fjárfestingartími 2 ár+
Virk stýring skuldabréfa
Eignasafn – Ríki og sjóðir er verðbréfasjóður sem býður faglega og virka stýringu á skuldabréfamarkaði. Sjóðurinn hefur rúmar heimildir til áhættudreifingar og getur því brugðist hratt við breyttum aðstæðum á skuldabréfamarkaði.
Vel dreifður sparnaður í virkri stýringu sem er ávallt laus til innlausnar.
Helstu kostir
- Virk stýring á skuldabréfamörkuðum
- Ódýr leið á innlenda og erlenda skuldabréfamarkaði
- Sveigjanlegar fjárfestingarheimildir í skuldabréfum
- Sérfræðingar sjá um stýringu safnsins
- Skattalegt hagræði
Fjárfesta í sjóði Upplýsingablað
Markmið sjóðsins
Markmið sjóðsins er langtímahækkun eigna með fjárfestingum í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu sem fjárfesta í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs, ábyrgð sveitarfélaga, öðrum skuldabréfum, innlánum fjármálafyrirtækja og öðrum fjármálagerningum tengdum verðbréfum. Sjóðnum er jafnframt heimilt að fjárfesta beint í innlendum og erlendum skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs eða sveitarfélaga og innlánum fjármálafyrirtækja.
Fyrir hvern er sjóðurinn?
Sjóðurinn hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í tvö ár eða lengur og þola nokkrar verðsveiflur. Sjóðurinn fjárfestir að stærstum hluta í hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða og fjárfestingarsjóða. Sjóðurinn fjárfestir einnig beint í skuldabréfum með ábyrgð ríkissjóðs og sveitarfélaga ásamt innlánum fjármálafyrirtækja. Áhættudreifing í sjóðnum er því góð, en alltaf má búast við tímabundnum eða langvarandi lækkunum.
Almennur fyrirvari
Fjárfestingu í sjóðum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta. Eignarhlutdeild í verðbréfa- eða fjárfestingarsjóði getur rýrnað, aukist eða staðið í stað og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna efnahagsástands, alþjóðlegra fjárfestinga auk gengisflökts gjaldmiðla þegar eignir sjóðs eru í erlendum gjaldmiðlum. Bent skal á að ávöxtun í fortíð er hvorki vísbending um né trygging fyrir ávöxtun í framtíð. Fjárfestingarmarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta eru mismunandi. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðgjafar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingakosti sem í boði eru. Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér útboðslýsingar sjóða, sérstaklega umfjöllun um áhættur. Athygli skal vakin á að áhætta af fjárfestingu eykst samfara fjármögnun fjárfestingarinnar með lánsfé.
Tekið skal fram að umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum.
Gengisþróun og ávöxtun
Í línuriti gengisþróunar er birt gengi viðkomandi sjóðs sl. eitt ár. Nafnávöxtun tímabila sem eru styttri en eitt ár er ekki reiknuð upp á ársgrundvöll heldur er þar um gengisbreytingu að ræða. Nafnávöxtun tímabila sem ná yfir eitt ár og lengur er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Uppreikningur ávöxtunar miðast ávallt við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt hvers sjóðs.
Fjárfesting í afleiðum
Sjóðum er heimilt að nota afleiður til að fastsetja hagnað eða til að draga úr áhættu, eða til að festa verð á verðbréfum vegna fyrirsjáanlegra innlausna eða til að bregðast við markaðsaðstæðum, enda sé það hluti af fjárfestingarstefnu sjóðsins. Fjárfestum er bent á að kynna sér nánari útskýringar á beitingu afleiðna sem er að finna í útboðslýsingu viðkomandi sjóða.
Skattlagning
Um skattlagningu hagnaðar af hlutdeildarskírteinum gilda lög um tekjuskatt nr. 90/2003, lög um fjármagnstekjuskatt nr. 94/1996 ásamt lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda nr. 45/1987. Frekari skattlagning getur þó komið til. Vakin skal athygli á því að skattameðferðin ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni. Um erlenda aðila gilda reglur þess ríkis sem viðkomandi hefur skattalegt heimilisfesti í. Fjárfestum er ráðlagt að leita sér ráðgjafar og/eða upplýsinga um skattaleg áhrif þess að fjárfesta í sjóðum.
Almennar upplýsingar
| Ítarefni | |
|---|---|
| Upplýsingablað | |
| Ávöxtunarblað sjóða | |
| Útboðslýsing sjóðsins | |
| Útdráttur úr útboðslýsingu | |
| Ársreikn. Íslandssjóða hf. | |
| Vaxta- og verðskrá verðbréfaþjónustu | |
| Almennt | |
| Stofnár | 2011 |
| Grunnmynt | ISK |
| Lágm.kaup/áskr. | 10.000 kr./5.000 kr. |
| Rekstraraðili | Íslandssjóðir hf. |
| Vörsluaðili | Íslandsbanki hf. |
| Fjárfestingarteymi | Aldís Stefánsd. sjóðsstjóri, |
| Mogens G. Mogensen sjóðsstjóri, | |
| Loftur Ólafsson sérfræðingur, | |
| Sigurður G. Gíslason safnastjóri, | |
| Þóknanir | |
| Kostn. við kaup | 1,00% |
| Árl. umsj.laun | 0,50% |
| Afgreiðslugjald | skv. verðskrá söluaðila |
| Viðskiptapantanir | |
| Kaup/innlausn | 1 viðsk.dagur (T+1) |
| Viðmiðunartími | kl. 15:00 |


