Stjórnarhættir
Vandaðir stjórnarhættir, gagnsæi í vinnubrögðum og traust viðskiptavina er kappsmál stjórnar og starfsmanna Íslandssjóða. Starfsemin lýtur stefnu, reglum og ferlum sem ætlað er að tryggja sem best hagsmuni viðskiptavina.
Stefna Íslandssjóða er að meirihluti stjórnarmanna séu óháðir. Í takt við þá stefnu eru þrír af fjórum stjórnarmönnum óháðir, bæði félaginu sjálfu og starfsmönnum þess og aðalhluthafa félagsins. Þetta fyrirkomulag er til þess fallið að hagsmunir viðskiptavina séu ætíð í fyrirrúmi.
Stjórn Íslandssjóða starfar eftir starfsreglum sem settar eru á grundvelli laga um hlutafélög og laga um fjármálafyrirtæki. Starfsreglurnar kveða m.a. á um hæfi stjórnarmanna, upplýsingagjöf og verkaskiptingu. Einnig er kveðið á um að stjórn Íslandssjóða skuli, eigi sjaldnar en árlega, meta störf sín, verklag og starfshætti. Á vegum stjórnar er starfrækt Endurskoðunarnefnd. Meðal verkefna nefndarinnar er mat á innra eftirlitskerfi félagsins og áhættustýringu, mat á því hvort öllum lögum og reglugerðum sé fylgt og mat á endurskoðunarskýrslum og öðrum störfum löggilts endurskoðenda félagsins.
Áhættustýring Íslandssjóða er margþætt og er fylgst með áhættu í rekstri félagsins sjálfs og þeirra verðbréfa-og fjárfestingarsjóða sem eru í stýringu þess. Reglulega er fylgst með eignum sjóðanna og að þeir séu innan heimilda fjárfestingarstefnu og laga. Útreikningur á áhættu-og árangursmælikvörðum er veigamikill þáttur í áhættustýringu og eftirliti. Áhættustýring Íslandssjóða sér um skýrslugerð og reglulega upplýsingagjöf til stjórnenda og annarra aðila í þeim málum er áhættustýringu og eftirlit varða.
Í verklagsreglum Íslandssjóða er sérstakur kafli um siðareglur. Efnisatriði þeirra reglna varða m.a. skyldur við viðskiptavini, fagleg vinnubrögð og hagsmunárekstra. Stjórn félagsins hefur einnig samþykkt sérstakar reglur um hagsmunarárekstra.
Íslandssjóðir leggja metnað sinn í að vera í fararbroddi í upplýsingagjöf. Á vefsíðu félagins má meðal annars finna verklagsreglur, reglur um áhættustýringu og aðferðafræði við stýringu sjóða, ítarlega upplýsingar um Íslandssjóði og upplýsingablöð um verðbréfa-og fjárfestingarsjóði félagsins, ávöxtunartölur, útboðslýsingar og ársskýrslur Íslandssjóða.
