Íslandssjóðir hf. – Árshlutauppgjör 2010

31.08.2010

Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2010.

Íslandssjóðir hf. - Árshlutareikningur 2010

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2010

  • Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2010 er 124 m.kr. samanborið við 164 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
  • Rekstrargjöld námu 328 m.kr. samanborið við 386 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og lækkuðu um 14,9%.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 479 m.kr. samanborið við 579 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður, drógust saman um 17,1%.
  • Eigið fé 30. júní 2010 nam 1.424 m.kr. en var 1.300 m.kr. í ársbyrjun.
  • Heildareignir félagsins 30. júní 2010 námu 3.010 m.kr. en voru 3.074 m.kr. í árslok 2009.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 132,8% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
  • Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 126.837 m.kr. í lok júní samanborið við 110.105 m.kr. í árslok 2009.
  • Íslandssjóðir hf. sjá um stýringu og rekstur á 17 sjóðum, en einnig sér félagið um stýringu á einum verðbréfasjóði í Glitnir Asset Management S.A. í Lúxemborg. Heildareignir í stýringu Íslandssjóða hf. í Lúxemborg fyrstu 6 mánuðina námu 18.485 m.kr. í stað 20.404 m.kr. um áramót.
  • Í lok júní sl. voru fimm sjóðir í slitaferli hjá Íslandssjóðum. Um er að ræða  fyrirtækjaskuldabréfasjóðina Sjóð 1 og Sjóð 11 ásamt erlendu peningamarkaðssjóðunum í NOK, EUR og USD. Frá upphafi slitameðferðar þessara fimm sjóða hafa verið greiddar út alls 21.800 milljónir króna til hlutdeildarskírteinishafa.
  • Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  • Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. en við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2010.
Lykiltölur í m.kr.
6 mán. 2010 6 mán. 2009
Hreinar rekstrartekjur 479 579
Rekstrargjöld 328 386
Hagnaður fyrir skatta 151 193
Hagnaður eftir skatta 124 164
Eigið fé 1.424 1.195

Afkoma sjóða í áframhaldandi rekstri fyrstu sex mánuði ársins

  • Hagnaður á sjóðum í áframhaldandi rekstri fært á hlutdeildarskírteini á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 6.205 m.kr. samanborið við 2.658 m.kr. hagnað fyrstu sex mánuði ársins 2009.
  • Hrein eign sjóða í áframhaldandi rekstri nam  98.140 m.kr. samanborið við  69.933 m.kr. í árslok 2009.
Lykiltölur í m.kr.
Verðbréfasjóðir Fjárfest. sjóður Samtals sjóðir í rekstri
Veltu-
safn
Eigna-
safn
Fókus-vextir Sjóður
5
Sjóður
6
Sjóður
7
Heims-
safn
Ríkis-
safn
Sjóður
10

Hagnaður (tap) tímabilsins 341 10 70 1.940 20 2.478 (147) 1.417 75 6.205
Hrein eign 8.770 160 1.117 28.049 239 34.723 1.256 23.161 665 98.140

Afkoma sjóða í slitameðferð fyrstu sex mánuði ársins

  • Hagnaður á sjóðum í slitameðferð fært á hlutdeildarskírteini fyrstu sex mánuðina nam 534 m.kr. samanborið við 11.185 m.kr. tap fyrstu 6 mánuðina 2009.
  • Hrein eign sjóða í slitameðferð nam 8.544 m.kr. samanborið við 17.407 m.kr. í árslok 2009.
Lykiltölur í m.kr. Verðbréfasjóðir Fjárfestingasjóðir Samtals sjóðir í slitum
Sjóður 1A Sjóður 1B Sjóður 11A Sjóður 11B Sjóður 9.1 Sjóður 9.2 Sjóður 9.3
Hagnaður (tap) tímabilsins 221 263 56 66 (72) (4) 3 534
Hrein eign 2.409 3.729 474 876 504 93 459 8.544

Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá Eignastýringu Íslandsbanka, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 7. september 2010.

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, fram­kvæmda­stjóri félagsins í síma 440-4917.

Til baka