Veltusafn Íslandssjóða um 7 milljarðar króna

06.04.2010

  • Sjóðurinn hefur vaxið í tæpa 7 milljarða síðan hann var stofnaður í september 2009
  • Endurspeglar eftirspurn eftir öðrum kostum en innlánum til að ávaxta sparnað til skamms tíma
  • Árið 2009 jukust eignir í ríkisskuldabréfasjóðum Íslandssjóða um 55%

Í september 2009 settu Íslandssjóðir nýjan verðbréfasjóð, Veltusafnið, á markað en sjóðurinn fjárfestir í innlánum fjármálafyrirtækja og skammtímaverðbréfum með ríkisábyrgð. Sjóðurinn hefur fengið mjög góðar viðtökur og er stærð hans nú um sjö milljarðar króna. Mikil eftirspurn hefur verið eftir innlánum og ríkisvíxlum síðustu misseri en með fjárfestingu í Veltusafninu næst góð eignadreifing milli skuldabréfa  með ábyrgð ríkissjóðs og innlána fjármálastofnana.

Stuttur meðallíftími ríkisverðbréfa og innlán í sjóðnum þýðir að gengi sjóðsins sveiflast lítið við breytingar á ávöxtunarkröfu bréfanna á markaði. Virk stýring innlána, víxla og ríkisskuldabréfa í sjóðnum gerir það einnig að verkum að mögulegt er að ná fram betri ávöxtun til lengri tíma en ef eingöngu er lagt inn á sparnaðarreikninga.

Veltusafnið hentar fjárfestum sem vilja ávaxta fé í skamman tíma þar sem meðallíftími fjárfestinga sjóðsins er á bilinu 0 til 1 ár. Söluaðilar Veltusafns Íslandssjóða eru Eignastýring Íslandsbanka og Auður Capital. Hægt er að fjárfesta með stökum kaupum í sjóðnum og einnig er hægt að skrá sig í reglulega áskrift.

Íslandssjóðir er leiðandi aðili í stýringu og rekstri íslenskra skuldabréfasjóða. Árið 2009 jukust eignir í ríkisskuldabréfasjóðum Íslandssjóða um 55%.  Íslandssjóðir er að fullu í eigu  Íslandsbanka.

Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsingu Veltusafnsins og allar nánari upplýsingar um sjóðinn sem finna má á vef Íslandssjóða. Veltusafn er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Hafa ber í huga að eign í verðbréfasjóði eða fjárfestingarsjóði getur bæði hækkað og lækkað, allt eftir þróun á markaðsverði þeirra.

Til baka