Sjóður 1A: Slit og útgreiðsla
05.02.2010
Undanfarna mánuði hefur verið unnið að því að finna leið til að opna Sjóð 1 - Skuldabréf aftur með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi. Til stóð að opna fyrir viðskipti með sjóðinn þann 30. janúar 2010 ef aðstæður leyfðu. Þrátt fyrir að sjóðurinn hafi tryggt góðan seljanleika til að mæta miklum innlausnum er sú hætta fyrir hendi að erfitt geti verið að selja fyrirtækja- og sveitarfélagabréf í eigu sjóðsins. Við slíkar aðstæður, þar sem mögulegar innlausnir geta orðið miklar, er hætta á að eignasamsetning sjóðsins riðlist verulega á mjög skömmum tíma. Það er því mat stjórnar Íslandssjóða hf. að hagsmunum sjóðfélaga sé best borgið með því að slíta sjóðnum og að um leið sé jafnræði fjárfesta á endurheimtum best tryggt.
Helstu ástæður fyrir slitum nú er sú óvissa sem ríkjandi er í rekstrarumhverfi fyrirtækja þar sem endurreisn íslensks efnahagslífs hefur gengið hægar en búist var við og fjárhagslegri endurskipulagningu margra fyrirtækja er enn ólokið. Af þessum sökum hefur markaður með fyrirtækjaskuldabréf farið mun hægar af stað aftur en búist var við þegar ákvörðun var tekin um að stefnt skyldi að enduropnun. Þá virðist áhugi fjárfesta takmarkast við að kaupa skuldabréf útgefin af fyrirtækjum á verulegu undirverði, en slík sala er ekki talin samrýmast hagsmunum sjóðseigenda. Við núverandi aðstæður er því verðmat eigna sjóðsins mikilli óvissu háð.
Slit Sjóðs 1A fela í sér að allt laust fé verður greitt út til sjóðfélaga, þ.e. innlán og andvirði ríkisskuldabréfa. Útgreiðslur fara fram þann 8. febrúar 2010 og er útgreiðsluhlutfall nú um 70% af heildareignum. Í framhaldi er stefnt að útgreiðslum tvisvar á ári af þeim eignum sem eftir standa og munu útgreiðslur ráðast af endurheimtum eða sölu skuldabréfa á hverjum tíma.
Við hvetjum eigendur í sjóði 1A til að hafa samband við ráðgjafa okkar í Eignastýringu í síma 440 4900 til að fá frekari upplýsingar.
