Ávöxtun á árinu 2009
22.01.2010
Síðastliðið ár var hagstætt verðbréfasjóðum sem fjárfesta í ríkisskuldabréfum. Lækkandi ávöxtunarkrafa á markaði leiddi til hækkandi verðs ríkisverðbréfa og hárrar ávöxtunar á verðbréfasjóðum sem fjárfesta í ríkisskuldabréfum.
Ávöxtun Sjóðs 7 yfir árið 2009 var 16,3% og ávöxtun Sjóðs 5 var 16,0%. Meðaltal ávöxtunar annarra verðbréfasjóða sem fjárfesta eingöngu í ríkisskuldabréfum var á sama tíma 15,5% skv. sjodir.is.
Þegar litið er til ávöxtunar síðustu 2-5 ára eru sjóðir 5 og 7ávalt að skila bestu ávöxtun sambærilegra sjóða. Verðtryggðir skuldabréfasjóðir hafa notið vaxandi vinsælda undanfarið enda eru þeir leið fyrir fjárfesta til að fá verðtryggingu á eign sína án þess að binda þurfi upphæðina í mjög langan tíma. Sjóðir 5 og 7 hafa stækkað hratt undanfarin ár og er samanlögð stærð þeirra nú um áramót ríflega 52 ma.
Á árinu hófu göngu sína tveir nýir verðbréfasjóðir, Ríkissafnið og Veltusafnið. Ávöxtun sjóðanna var ágæt en þeir fjárfesta í stuttum ríkisverðbréfum og innlánum.
Aðalvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 14,6% á árinu og lækkaði Sjóður 6 sem endurspeglar vísitöluna á hverju tíma samsvarandi. Sjóður 10 lækkaði um 1,1% en hluti eigna sjóðsins var ávaxtaður í innlánum á árinu.
Erlendir hlutabréfamarkaðir hækkuðu mikið á árinu. Heimssafn-Sjóður 12 hækkaði um 39,6% á árinu en til samanburðar hækkaði Heimsvísitala MSCI um 35,5% í krónum. Eignasafnið sem er blönduð fjárfestingarleið sem hóf göngu sína í ágúst 2009 hækkaði um 5,8% fram til loka árs. Ávöxtunartölur á ársgrundvelli verða ekki tiltækar fyrr en að fjárfestingarleiðin hefur verið starfrækt í tólf mánuði.
