Íslandssjóðir hf. - Árshlutauppgjör 2009

01.09.2009

Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur Verðbréfasjóði, Fjárfestingarsjóði og Fagfjárfestasjóði hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2009.

Íslandssjóðir hf. - Árshlutauppgjör 2009

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2009

  • Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuðina 2009 164 m.kr. samanborið við 284 m.kr. fyrstu sex mánuðina 2008.
  • Rekstrargjöld námu 386 m.kr. samanborið við 722 m.kr. árið áður, og lækkuðu um 46,5%
  • Hreinar rekstrartekjur námu 579 m.kr. samanborið við 1.054 m.kr. árið áður, drógust saman um 45,1%
  • Eigið fé 30. júní 2009 nam 1.195 m.kr. en var 1.031 m.kr. í ársbyrjun.
  • Heildareignir félagsins 30. júní 2009 námu 1.675 m.kr. en voru 2.470 m.kr. í árslok 2008.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 175,5% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
  • Fjármunir sjóða í stýringu Íslandssjóða hf. námu 129.525 m.kr. í lok júní samanborið við 132.904 m.kr. í árslok 2008.
  • Íslandssjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á 15 sjóðum, en einnig sér félagið um stýringu á einum verðbréfasjóði og einum vogunarsjóði í Glitnir Asset Management S.A. í Lúxemborg.  Heildareignir í stýringu Íslandssjóða hf. í Lúxemborg fyrstu 6 mánuðina nam 3.040 m.kr. í stað 2.433 m.kr. um áramót.
  • Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning Verðbréfasjóða og Fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  • Athygli er vakin á því að fjárfestingarstefna er hlutlaus staða viðkomandi sjóðs og til að ná betri árangri í stýringu eru vikmörk notuð sem er tilgreint hámark og lágmark. Allur þessi rammi er fjárfestingarstefna viðkomandi sjóðs. Öllum sjóðum nema Sjóði 6 er stýrt skv. virkri stýringu til að ná betri árangri í ávöxtun en stefnan (hlutlaus) gerir ráð fyrir.
  • Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2009.
Lykiltölur í m.kr. 6 mán. 2009 6 mán. 2008
Hreinar rekstrartekjur 579 1.054
Rekstrargjöld 386 722
Hagnaður fyrir skatta 193 331
Hagnaður eftir skatta 164 284
Eigið fé 1.195 641

Afkoma sjóðsdeilda Verðbréfasjóða fyrstu sex mánuði ársins

  • Tap á Verðbréfasjóðum fært á hlutdeildarskírteini á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 6.396 m.kr. samanborið við 8.823 m.kr. hagnað fyrstu sex mánuði ársins 2008.
  • Hrein eign Verðbréfasjóða nam 82.008 m.kr. samanborið við 80.032 m.kr. í árslok 2008.
Lykiltölur í m.kr.
Sjóður 1A Sjóður 1B Sjóður 5 Sjóður 6 Sjóður 7 Sjóður 11A Sjóður 11B Heimssafn Ríkissafn Samtals Verðbréfasjóðir
Hagnaður (tap) tímabilsins færður á hlutdeildarskírteini (7.072) (1.302) 876 (81) 1.303 (658) (21) 155 405 (6.396)
Hrein eign í lok tímabilsins 17.208 1.816 16.488 260 26.293 5.081 55 1.270 13.465 82.008

Afkoma Fjárfestingarsjóða fyrstu sex mánuði ársins

  • Tap á Fjárfestingarsjóðum fært á hlutdeildarskírteini fyrstu sex mánuðina nam 2.274 m.kr. samanborið við 12.689 m.kr. hagnað fyrstu 6 mánuðina 2008.
  • Hrein eign Fjárfestingarsjóða nam 1.786 m.kr. samanborið við 6.232 m.kr. í árslok 2008.
Lykiltölur í m.kr.
Sjóður 9.1 Sjóður 9.2 Sjóður 9.3 Sjóður 10 Samtals Fjárfestingarsjóðir
Hagnaður (tap) tímabilsins færður á hlutdeildarskírteini (1.380) 0 (752) (143) (2.274)
Hrein eign í lok tímabilsins 619 97 437 633 1.786

Árshlutareikningur félagsins mun liggja frammi hjá Eignastýringu Íslandsbanka, Kirkjusandi, 4. hæð og á islandssjodir.is frá og með 7. september 2009.

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, fram­kvæmda­stjóri félagsins í síma 440-4917.

Til baka